158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[18:28]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir prýðisræðu. Mig langar til að spyrja hann út í það sem ég kalla metnaðarleysi ríkisstjórnarinnar. Nú er hann búinn að fara ágætlega yfir marga ókosti við frumvarpið. Ef ríkisstjórnin hefði ákveðið að standa sig aðeins betur og draga úr ríkisútgjöldum um rúmt prósent hefði ekki þurft að hækka neina skatta á fólk og fyrirtæki og þar með hefði hún staðið við eigin loforð, fyrir utan alla þá kosti sem það hefði í för með sér.

Fyrsta spurningin er hvort hv. þingmaður geti tekið undir það með mér að það sé ákveðið metnaðarleysi að draga ekki meira úr ríkisútgjöldum þegar ekki þarf meira en þetta til að standa við kosningaloforðin. Hvenær er þá hægt að gera ráð fyrir að þessir flokkar standi við kosningaloforðin ef þeir gera það ekki með því að draga úr allt of stóru bákni um 1%? Það er fyrsta spurningin.

Seinni spurningin kemur aftur að því hvernig þessi ríkisstjórn hefði frekar, að mínu mati, átt að draga úr útgjöldum. Þau ætla að draga úr starfsmannafjölda — þó jafnvel minna en það sem telst eðlileg endurnýjun miðað við hve margir hætta, þannig að þar er líka ákveðið metnaðarleysi. Frá árinu 2016 hefur fjölgun opinberra starfsmanna verið 28% á meðan aukning mannfjölda hefur verið 19%. Víða í einkafyrirtækjum hefur starfsmönnum fækkað frá því sem var 2016 vegna hagræðingar og tækniframfara. Er þessi punktur ekki eitthvað sem við þurfum að skoða sérstaklega í vinnu nefndarinnar?