158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[19:11]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir gott andsvar. Hann fór víða í ræðu sinni áðan. En mig langar í seinna andsvari að nefna það sem hún velti upp, hvort hækkun á bankaskatti gæti haft áhrif á möguleika og vöxt minni fyrirtækja til að sækja sér lánsfjármagn. Ég er nú ekki sérfræðingur í þessu, enda ekki hagfræðingur. En ég ætla samt að leyfa mér að halda að það sem hefði jafnvel meiri áhrif á minni fyrirtæki en hækkun á bankaskatti væru 8% stýrivextir. Ég held að það hafi meiri áhrif. Ég held, þegar við erum að horfa á þessar skattbreytingar sem verið er að gera, að ávinningurinn af því að skila hallalausum fjárlögum — sem vonandi verður til þess að Seðlabankinn fer að lækka vexti aftur og við komumst aðeins inn á beinu brautina hvað það varðar. Það eru auðvitað skýr merki um að verðbólgan geti farið að hjaðna, það hefur hægt á launaskriðinu og húsnæðisverð hefur staðið í stað og sums staðar lækkað. Þannig að það hefur hægt verulega á og það ættu að skapast skilyrði fyrir því að vaxtalækkunarferli geti hafist að nýju. Mitt viðbragð við því er að heildarávinningur samfélagsins, og ekki síður minni fyrirtækja, er að við náum niður vaxtastiginu. Ég held að það sé stóra málið fyrir þessi litlu fyrirtæki og fyrir vöxt þeirra og aðgengi að lánsfé. Er hv. þingmaður sammála mér í þessari greiningu minni?