158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[19:17]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Jú, ég hygg að þetta geti verið hárrétt hjá hv. þingmanni. Við erum lítið hagkerfi og við erum viðkvæm fyrir utanaðkomandi áhrifum og ef hér verða stór verkföll og ferðamönnum fækkar á Íslandi hefur það mjög mikil áhrif. Ég var nú kannski ekki síst að vísa í þessi frægu 5,2% og skilaboðin sem við erum að senda út á vinnumarkaðinn með því vegna þess að forsenduákvæði kjarasamninganna er brostið, vegna þess að hér ætluðum við að koma okkur saman um, ég stóð í þeirri meiningu og fyrrverandi ríkisstjórn gerði það vissulega líka þegar gengið var til kjarasamninga, að það ætluðu allir að halda í sér.

Mér finnst ríkisstjórnin vera að senda út þau skilaboð að hún sé ekki að horfa til þess og við vitum það alveg öll hér inni að það er einmitt rétt orðað hjá hv. þingmanni að þetta er fjárlagafrumvarp sem sýnir fram á afgang. Hann er 5 milljarðar sem er auðvitað lítið í samhengi hlutanna þegar verið er að ræða um fjárhag íslenska ríkisins og það má mjög lítið út af bregða. Og aftur, þetta er frumvarp, þetta eru ekki orðin lög en þegar við afgreiðum þetta frá okkur þá eru þetta orðin lög og hér hefur verið sú saga og hefð að frumvörp eins og fjárlagafrumvörp taka breytingum í meðferð þingsins, iðulega í þá átt að útgjöld aukast. Ég hef oft gagnrýnt það að við þurftum líka að finna hagræðingartillögur í meðferðunum. Ég held að afgangurinn sé farinn bara við það að uppreikna þetta frumvarp miðað við næstu þjóðhagsspá, sem á að koma fyrir 2. umræðu og ég geri ráð fyrir því að hér verði þessi grunnur allur uppfærður. Þannig að það þarf raunverulega að fara í einhverjar aðgerðir ef þessi vænti afgangur af ríkisrekstrinum á raunverulega að skila sér.