158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[19:22]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka aftur hv. þingmanni andsvarið og tek undir það að í dag, og þetta hefur svo sem verið rætt hér áður, erum við að tala um raunverulega áskorun okkar til framtíðar. Ef það er þannig að hefðbundinn tekjuskattur stendur ekki undir greiðslum okkar úr almannatryggingakerfinu erum við í vondum málum. Það er staðan og það þarf að horfa til þess. Þá má ég benda á það að þessi ríkisstjórn hefur nú breytt útreikningunum varðandi almannatryggingakerfið okkar, fest í sessi að það er ekki ákvörðun hér við gerð þessara fjárlaga hvað greiðslur úr almannatryggingakerfinu eigi að hækka um þannig að þær hækka núna töluvert meira en til að mynda atvinnuleysisbætur, sem mun aftur valda misræmi sem ég geri ráð fyrir að á einhverjum tímapunkti muni þurfa að bregðast við. Þetta er einn af stóru þáttunum sem fjármálaráð og fleiri vöruðu við. Fulltrúar ríkisstjórnarinnar skelltu skollaeyrum við þessari varúð og töldu þetta ekki vera það vandamál sem þó okkar virtustu hagfræðingar í fjármálaráði bentu á að gæti orðið. Þannig að ég óttast það og ég held að þetta kalli á mikilvægt verkefni hjá okkur að skoða til framtíðar.

Við vitum jú að þetta eru helstu áskoranirnar líka í ríkisrekstri stóru landanna úti í Evrópu, þ.e. eftirlaunasjóðirnir, því að þar er gegnumstreymiskerfi, að þeir standi ekki undir eftirlaunum. Við erum þó komin með okkar frábæra lífeyrissjóðakerfi en ef þetta er staðan bara út frá greiðslu bóta vegna örorku og veikinda erum við á vondum stað eins og hv. þingmaður benti á, ég tek undir það, og það er okkar allra að finna sameiginlega lausn á því hvernig hægt er að snúa því við. Með því er ég ekki að segja að það eigi endilega að fara í að lækka bætur, ég er ekki að segja það, en staðan er verulega alvarleg. Við verðum að finna leiðir til að auka hér verðmætasköpun í þessu samfélagi og þannig aukum við tekjur hjá ríkissjóði og gerum okkur betur gildandi til þess að standa undir þeirri velferð sem ég held að við séum öll sammála um að við viljum hafa.