158. löggjafarþing — 6. fundur,  15. sept. 2026.

störf þingsins.

[13:33]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Metnaðarleysið skín glögglega í gegnum þessi þriðju fjárlög ríkisstjórnarinnar. Þau fyrstu, árið 2025, fengu þau í arf frá fyrri ríkisstjórn og þessi ríkisstjórn skilaði því ári með tugmilljarða útgjaldaaukningu. Fyrir árið 2026 boðaði ríkisstjórnin meiri útgjaldaaukningu milli ára en nokkur önnur ríkisstjórn hefur boðað. Þá snerust blaðamannafundirnir og PR-stuntið um að sama hvað þá ætlaði ríkisstjórnin að standast stöðugleikaregluna og það var gert með skatta- og gjaldahækkunum. En hvað er að raungerast? Þessi metútgjaldaaukning dugði ekki þessari vinstri stjórn því samkvæmt áætlun er gert ráð fyrir að hallinn aukist um sirka 40 milljarða á þessu ári og stöðugleikareglan sennilega löngu gleymd. En nú erum við komin að fjárlögum fyrir 2027 þar sem PR-stuntið snýst um hallalaus fjárlög, sama hvað, og þau skal fjármagna með skatta- og gjaldahækkunum þvert á gefin kosningaloforð; útgjaldahækkun sem mun hríslast út í allt kerfið með tilheyrandi afleiðingum á verðbólgu og vexti. Þetta er sama uppskrift og hleypti verðbólgunni af stað í fyrra. Á virkilega að gera sömu mistök og búast við því að útkoman verði einhver allt önnur? Algjört metnaðarleysi felst m.a. í þeirri staðreynd að ríkisstjórnin virðist ekki hafa lagt mikið á sig til að standa við kosningaloforðin. Hún hefði getað sleppt öllum skatta- og gjaldahækkunum með því að hagræða sem nemur innan við 2% af útgjöldum ríkissjóðs.

Frú forseti. Nú mæðir á Alþingi og ég legg til að það verði gefið svigrúm í þingdagskránni á næstunni svo fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd geti í sameiningu unnið að því að lækka útgjöld fjárlaga samhliða því að vinda ofan af skatta- og gjaldahækkunum svo hallalaus fjárlög haldi. Þá værum við komin með fjárlög sem gætu stutt við að ná hér niður verðbólgu og vöxtum, öllum til heilla.