störf þingsins.
Virðulegi forseti. Það er þyngra en tárum taki að fylgjast með áhuga- og metnaðarleysi ríkisstjórnarinnar í kjölfar ömurlegra PISA-niðurstaðna. Hæstv. menntamálaráðherra virðist skilinn einn eftir með vandann og íslensk ungmenni sitja við botninn að ósekju. Ólíkt hafast frændur okkar á Norðurlöndunum að þótt staða þeirra sé miklu betri í málaflokknum en okkar. Þar bregðast ríkisstjórnir við, boða aðgerðir og ráðast í breytingar. Þau skilja að hér er undir tunga þjóðarinnar, lýðræði og framtíðarefnahagur. Skeytingarleysi ráðamanna gagnvart menntun barna er ein af breytunum sem skýrir þessa hnignun í PISA. Núna hafa 44% 15 ára ungmenna ekki grunnfærni í lesskilningi. Þau eiga í erfiðleikum með að lesa á milli línanna, draga ályktanir og túlka texta. Takmarkaður orðaforði þrengir möguleika þeirra til að hugsa djúpt og mynda með sér upplýstar skoðanir.
En þetta er ekki náttúrulögmál. Við erum einfaldlega að bregðast börnunum okkar. Ísland mælist nú með 422 PISA-stig í lesskilningi og þar af 2% í efstu þrepunum, einungis 2%. Fyrir tíu árum mældist hins vegar stór íslenskur skóli með 545 PISA-stig, einn ódýrasti skóli landsins, með fjölbreyttan nemendahóp, um 15% nemenda sem ekki voru í skólahverfinu og rákust ekki annars staðar. 21% nemenda þessa skóla voru með afburðahæfni. Við erum að tala um 422 stig gegn 545, 2% gegn 21%. Munurinn samsvarar rúmum sex skólaárum og afburðanemendur voru tíu sinnum fleiri fyrir tíu árum. Það er hægt að ná miklu betri árangri með íslensk börn innan íslenska skólakerfisins ef vilji er fyrir hendi. Þegar 44% ungmenna ná ekki grunnfærni í lesskilningi er aðgerðaleysið ekki lengur afsakanlegt. Þetta er vanræksla af verstu gerð. Skammist ykkar.