158. löggjafarþing — 6. fundur,  15. sept. 2026.

störf þingsins.

[13:50]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Ríkisstjórnin er að stoppa í fjárlagagatið og skila hallalausum fjárlögum. Til að ná því markmiði er mikilvægt að gæta aðhalds og forsjálni í meðferð opinbers fjár. Þá er ekki síður mikilvægt að horfa til leiða sem við getum í sameiningu beitt til að gera eina krónu að tveimur, þ.e. að vaxa þannig að það verði auðveldara að ná þessum endum saman. Ein þeirra leiða sem blasir við er að draga úr því að óunninn afli sé fluttur úr landi í körum, staflað í kör og fari í vinnslu erlendis til verðmætaaukningar þar. Hér er ekki verið að tala um einhverjar baunir heldur marga milljarða króna í verðmætaaukningu innan lands á hverju einasta ári. Þarna eru tækifæri, frú forseti. Með aukinni fullvinnslu afla hér heima verður til aukinn virðisauki í beinhörðum gjaldeyri, þjóðarbúinu til heilla. Á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar er einmitt að finna frumvarp frá hæstv. atvinnuvegaráðherra sem ætlað er að stuðla að því að sjávarafli verði í auknum mæli unninn hér heima. Það eru fjölmargar leiðir til þess, t.d. með því að tryggja að allur afli sem landað er hér á landi skuli seldur á fiskmarkaði ef útgerðarfyrirtæki er ekki samtengt vinnslu, sem það fær til vinnslu. Með því er tryggt að innlendar vinnslur geti þá boðið í afla sem færi að öðrum kosti til vinnslu annars staðar erlendis. Til að varðveita og auka orðspor íslenskra sjávarafurða er nauðsynlegt að tryggja gæði afurðanna þannig að þeir sem höndla með fiskinn hafi starfsleyfi og búi að lágmarki þannig um afurðirnar að hráefnið spillist ekki. Í Færeyjum er útgerðum gert að landa a.m.k. 30% alls afla á markað. Þessi einfalda regla tryggir gagnsæi og rétt uppgjör sjómanna og gjöld til hafna. (Forseti hringir.) Sanngjörn verðlagning skilar bæði sjómönnum og hinu opinbera ávinningi og er besta leiðin til að sporna við milliverðlagningu.