158. löggjafarþing — 6. fundur,  15. sept. 2026.

barnavernd.

78. mál
[17:11]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég vil byrja á því að leiðrétta hv. þingmann þegar kemur að fósturkafla barnaverndarlöggjafarinnar. Eitt af því sem varð þess valdandi að málið kom ekki fyrr fram var áhersla mín sérstaklega á það að bæta fósturkafla inn í barnaverndarlöggjöfina og var það gert. Hann var alveg tilbúinn og klár í vor sem leið en hins vegar voru ýmsar aðrar athugasemdir sem við höfum tekið tillit til, eins og ég fór yfir í flutningsræðu minni hér rétt áðan. En er nóg að gert til að koma t.d. í veg fyrir hræðilegar aðstæður barna í fóstri? Í frumvarpinu er lögð sérstök áhersla á að styrkja vernd barna í fóstri og draga úr hættu á að börn búi við óviðunandi aðstæður. Við erum að tala um heimsóknir og eftirlitsheimsóknum er fjölgað verulega. Ég lagði sérstaka áherslu á það að þessar heimsóknir yrðu ekki tilkynntar fyrir fram nema bara þessar eðlilegu heimsóknir, kannski fjórum sinnum á ári. Ég legg ríka áherslu á að það verði algerlega óundirbúnar heimsóknir þar sem fósturforeldrum verður gert ljóst að þeir geti átt von á því að komið sé í heimsókn til að hitta barnið og sjá aðstæður þess algerlega óundirbúið. Mér finnst óboðaðar heimsóknir skipta gífurlega miklu máli og það er ekki verið að koma aftan að fósturforeldrum; þeir eru algjörlega upplýstir um þetta fyrir fram, enda munu þeir væntanlega ekki hafa neitt að fela. Við gerum allt núna og leggjum allan okkar metnað í að þeir sem eru með vilja og elsku í hjarta til að taka við fósturbörnum, ala önn fyrir þeim og hjálpa þeim í sinni erfiðu stöðu, geri það sannarlega með hjartað á réttum stað. Við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því, þeir verða ekki mótfallnir því að fá óboðaðar heimsóknir eða neitt slíkt. Þannig að ég tel, hv. þingmaður, að við séum virkilega að leggja okkur fram um að reyna að bæta hlutina og gera þá betri.