158. löggjafarþing — 6. fundur,  15. sept. 2026.

barnavernd.

78. mál
[17:16]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Já, eðlilega voru allir mjög ánægðir með þetta samkomulag enda stendur það fullkomlega, hv. þingmaður. Það var hálft A4-blað þar sem stóð skýrum stöfum að leggja ætti 3 milljarða í þriðja stigs þjónustu og eðlilega allir glaðir því þetta kom að frumkvæði okkar við stjórnarmyndun, að við skyldum taka utan um þriðja stigs vandann með sveitarfélögunum okkar sem væri dýrasti vandinn. Það þýddi ekki að við ætluðum að taka til okkar fyrsta eða annars stigs þjónustu sveitarfélaganna. Það þýddi ekki að upphæðin yrði hærri en 3 milljarðar. Það þýddi ekki að við ætluðum að taka við fötluðum börnum sem eru í heimahúsi. Þriðja stigs þjónusta felur í sér þjónustu við börn með þyngstu stuðningsþarfir sem þurfa að fá stuðning utan heimilis. Innan heimilis höfum við ýmis önnur úrræði, sem ég veit að hv. þingmaður þekkir, eins og NPA-þjónustu og ýmsan annan stuðning við foreldra, fjölskyldur og barnið sjálft. En það liggur algerlega fyrir að reglugerðin byggir hundrað prósent á því samkomulagi sem var gert í fyrra og þeirri upphæð sem þar kemur fram. Sveitarfélögin búa við ákveðnar skyldur gagnvart sínum þegnum og þar á meðal er annars stigs þjónusta, fötluðu börnin og sú þjónusta sem veitt er í heimahúsi. Ég verð að segja að ég kom nú eiginlega af fjöllum þegar þetta var viðrað, ef ég á að segja alveg eins og er. Við höfum hingað til gert ýmislegt til að létta undir með sveitarfélögunum og ætlum að halda því áfram og eigum í mjög góðu sambandi við þau. En þessi útfærsla og urgur er algerlega úr lausu lofti gripinn, fyrir utan það, eins og hv. þingmaður bendir á, að á næsta ári munum við vera búin að leggja 4,5 milljarða í þennan fjölþætta vanda sem mun í rauninni gera ríflega meira heldur en að uppfylla þörfina fyrir fjölda þeirra barna sem á þjónustunni þurfa að halda.