158. löggjafarþing — 6. fundur,  15. sept. 2026.

barnavernd.

78. mál
[17:32]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Veistu hvað, hv. þingmaður, nei. Ég skil ekki þau vonbrigði. Ég verð bara að segja það hreinskilnislega vegna þess að samningurinn er skýr. Okkur hefði verið í lófa lagið að sleppa því að setja þessar 3.000 milljónir í málaflokkinn til þess að taka utan um sveitarfélögin okkar og styðja enn frekar við þau, vegna þess að þau eru líka misvel í stakk búin og það eru mismunandi miklir erfiðleikar hjá sveitarfélögunum okkar við að sinna þessari þungu og mjög svo kostnaðarsömu þjónustu. Þannig að þetta var algerlega eigið frumkvæði þessarar ríkisstjórnar við stjórnarmyndun að taka og leggja þrjá milljarða inn í málaflokkinn á þessu stigi máls. Það stendur skýrum stöfum í samningnum. Það á að vera hafið yfir allan vafa hvað stendur í þessum samningum. Vonbrigði, það eru alltaf vonbrigði þegar ekki er meira fjármagn veitt og þegar ekki er meiri stuðningur. En það er ýmislegt annað sem við höfum gert og ég segi ekkert annað en það.

Einhver frá sambandinu gekk meira að segja það langt að segja að þau stæðu jafnvel verr eftir en áður. Ég segi: Við höfum ekki gefið út námsbækur hérna í áraraðir og við gætum alveg notað 3 milljarða kr. fjárframlag í eitthvað annað ef sveitarfélögin okkar kæra sig ekki um þetta og eru svona ofboðslega ósátt. Mér er pínulítið misboðið, ég verð að segja það eins og er, vegna þess að ég ætlast til þess að fullorðið fólk, og hvað þá fólk í Sambandi íslenskra sveitarfélaga, sé læst á einfalt hálft A4-blað um samkomulag sem er algjörlega skýrt. Það fer ekkert á milli mála hvað stendur í þessu samkomulagi, hv. þingmaður, ekki neitt. Þess vegna kemur þetta mér mjög á óvart og ég skil ekki vonbrigði yfir því sem þegar stendur svart á hvítu á þessu blaði, í þessu samkomulagi. Reglugerðin mín er eingöngu í takti við þetta samkomulag, hv. þingmaður.

En eins og ég segi, ef það er eitthvað sem við getum gert frekar og í frekara samtali, ef við þurfum að grípa um eitthvað annað en raunverulega samkomulagið felur í sér, þá verðum við að gera eitthvert annað og nýtt samkomulag.