sveitarstjórnarlög.
Virðulegur forseti. Ég ber mikla virðingu fyrir sjálfstæði sveitarfélaga og sjálfstæðum tekjustofnum sveitarfélaga. Sjálfstæðir tekjustofnar og sveitarstjórnarstigið missa marks ef ríkið er ábyrgðaraðili á öllum umframkostnaði. Hv. þingmaður nefndi hérna kostnaðarmat. Það er rangt hugtak. Það sem við erum að tala um hérna er mat á fjárhagslegum áhrifum á ákveðnum stjórnarfrumvörpum, lögum og reglum, en ekki kostnaðarmat. Ef ríkið myndi alltaf greiða það sem upp á vantar myndi það grafa undan bæði sjálfsstjórnarrétti sveitarfélaganna og efnahagslegu aðhaldi sveitarfélaganna og því hlutverki kjörinna fulltrúa að fara með fjármál síns sveitarfélags og forgangsraða í þeim verkefnum sem kjörnir fulltrúar vilja vinna að í pólitískri baráttu sinni til að verða kjörnir o.s.frv. og að hafa ábyrga fjármálastjórn. Þessi ábyrga fjármálastjórn er í höndum sveitarstjórnarfulltrúa en ekki þegar eitthvert kostnaðarmat kemur: Jú, heyrðu, það vantar 100 milljónir hér og 100 milljónir þarna og ríkið þarf að koma með meiri pening. Það eru ekki þau samskipti sem ég tel eiga að vera milli ríkis og sveitarfélaga. Ég tel að núverandi sveitarstjórnarstig með svona fjölbreyttan hóp og fámenn sveitarfélög — þá eru þessi samskipti mjög sérstök, m.a. hvað þetta varðar. Ég tel að við þurfum að fara að horfa á þetta miklu heildstæðara svo við getum raunverulega látið hina kjörnu fulltrúa fara með það hlutverk sem þeim er falið lögum samkvæmt og að sveitarstjórnarstigið sé það öflugt og sveitarfélögin séu það sterk að þau geti tekið á allri þeirri þjónustu sem þeim er færð.
Varðandi börn með fjölþættan vanda þá vísa ég í svar hæstv. mennta- og barnamálaráðherra sem kom hér fram áðan og ég tel að þessi umræða muni örugglega og sannarlega halda áfram. En það breytir því ekki að þetta frumvarp sem hér er lagt fram er unnið í nánu samstarfi við sveitarstjórnarstigið og felur í sér miklar réttarbætur. Ég tel að það sama eigi við um 143. gr. sem og annað í þessu frumvarpi.