158. löggjafarþing — 6. fundur,  15. sept. 2026.

sveitarstjórnarlög.

5. mál
[20:01]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra aftur fyrir og ég biðst afsökunar á því ef orð mín í svona stuttum, knöppum andsvörum eru skilin með þeim hætti að sveitarfélögin geti verið óábyrg í sínum fjárhag og sent einhvern veginn reikninginn á ríkið. Það er auðvitað alls ekki það sem sú sem hér stendur er að tala fyrir, alls ekki, heldur það að um sé að ræða samstarfsverkefni og þegar við hér setjum einhverjar kröfur á sveitarfélög um að veita ákveðna þjónustu þá getum við ekki gert það einhliða. Það þarf að meta hvaða áhrif það hefur á sveitarfélög. Eins og hæstv. ráðherra sagði áðan þarf einhvern veginn að vera raunhæfur innleiðingargrunnur, sem var orðið sem hæstv. ráðherra notaði og vísaði til þess þegar grunnskólinn var færður yfir á sínum tíma og þá breyttist hlutfallið í tekjuskattinum, útsvari og tekjuskatti ríkisins. Það sama átti sér stað þegar málefni fatlaðs fólks voru færð yfir. Eins og ég sagði áðan í ræðu minni þá eigum við skýrslur og greiningar á því. Það var búið að vinna alls konar greiningar áður en málefni fatlaðs fólks voru færð yfir, en það varð til aukinn kostnaður með nýjum lögum hér á Alþingi sem jók kostnaðinn sveitarfélagsmegin. Ég hef staðið í þeirri meiningu að 143. gr. væri til að tryggja sveitarfélög svolítið gagnvart þessu. Það væri til að aga vinnubrögð ráðherra og þings til að sjá til þess að það væru til raunverulegir fjármunir til að sinna þeirri þjónustu sem veitt er. Á endanum eru þetta auðvitað allt peningar frá skattgreiðendum og það er ótrúlega mikil orka sem hefur í gegnum tíðina farið í það að takast á milli ríkis og sveitarfélaga. Það er í rauninni ósanngjarnt gagnvart skattgreiðendum í þessu landi að við séum að eyða allri orkunni og pening í það í stað þess að finna hagkvæmustu leiðirnar til að veita góða þjónustu.

Virðulegur forseti. Ég ætla bara að fá að nefna það líka: Jú, það er svo sem hægt að segja að sveitarfélög hafi sjálfstæða tekjustofna, en þeir eru bundnir í lögum og það eru ansi mörg mikil takmörk á því hvernig tekjustofnar sveitarfélaga eiga að vera og ég ætla ekkert að leggja til sérstakar breytingar á því. Ég vil bara hvetja hæstv. ráðherra til að sjá til þess að félagar hans í ríkisstjórninni, aðrir ráðherrar í þessari hæstv. ríkisstjórn, komi með kostnaðarmat skv. 143. gr. á öllum þeim frumvörpum sem fara í gegnum ríkisstjórnina frá þeim tíma sem við erum hér að leggja þetta mál fram í 1. umræðu og koma því í vinnu hér í þinginu.