158. löggjafarþing — 7. fundur,  16. sept. 2026.

störf þingsins.

[13:31]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Í óundirbúnum fyrirspurnatíma í fyrradag sagði hæstv. forsætisráðherra, með leyfi forseta:

„Staða Íslands gagnvart Evrópusambandinu er óbreytt eins og hún var í tíð síðustu ríkisstjórnar.“

Virðulegi forseti. Þessi orð kalla á svör. Við vöknuðum upp við það að eftir stíf fundarhöld ráðherra ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur við Evrópusambandið er búið að koma fram með þá túlkun að við séum með gilda aðildarumsókn. Það var ekki í tíð síðustu ríkisstjórnar eða ríkisstjórna. Ég veit það, ég var utanríkisráðherra í tveimur af þremur þessara ríkisstjórna. Það kom aldrei upp, ekki í samtölum mínum við fulltrúa ESB eða innan ríkisstjórnar, hvort sem það var ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar eða í tveimur ríkisstjórnum Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna, að við værum með gilda aðildarumsókn, aldrei. Ef þessi aðildarumsókn er virk og í gildi þá er sömuleiðis þingsályktun sem var samþykkt um samning framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins við Ísland um svokallaða IPA-styrki, aðlögunarstyrki, í gildi. Það getur ekki annað verið. Og hvað fela þeir í sér, þessir IPA-styrkir, sem var hætt þegar Gunnar Bragi Sveinsson sleit þeim viðræðum? Það þýðir það að Evrópusambandið er að borga til aðildarríkja til að aðlaga sig að regluverki Evrópusambandsins. Það hefur t.d. borgað mikið til Tyrklands, sem sótti um aðild þegar ég var í menntaskóla. (Forseti hringir.) Eftir að þeir lækkuðu upphæðirnar eru þetta bara milljarðar eða tugir milljarða á ári. Við hljótum að spyrja okkur núna: (Forseti hringir.) Hvað er hæstv. ríkisstjórn að reyna að koma Íslandi í? Þessi fullyrðing stenst ekki (Forseti hringir.) og hún kallar á svör af hálfu forystumanna ríkisstjórnarinnar og kallar á umræðu hér í þinginu og í hv. utanríkismálanefnd.

(Forseti (ÞSv): Forseti biður hv. þingmenn um að virða ræðutímann.)