158. löggjafarþing — 7. fundur,  16. sept. 2026.

störf þingsins.

[13:34]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Flokkar eins og Samfylkingin og Viðreisn hafa á tyllidögum gefið sig út fyrir það að hafa áhuga á menntamálum. En það er ljóst að aðkoma þeirra að málaflokknum hefur verið afar takmörkuð og tillögur þingmanna þeirra um að bæta stöðuna svo gott sem engar. Ekki er íslenskum nemendum um að kenna hver staðan er, þeir eru frábærir, heldur er það fullorðna fólkið, þjóðkjörnir leiðtogar sem eru kjörnir til að búa þannig um hnútana að árangur náist. Þar liggur ábyrgðin. Þögnin frá þingmönnum Samfylkingarinnar og Viðreisnar er ærandi, hvað þá þegar neyðarástand ríkir í málaflokknum. Hér er tungumálið, lýðræðið og framtíðarefnahagur landsins undir og því dugar þögnin ein ekki. Hvaða lausnir eða aðgerðir hafa þessir flokkar komið með á þessu þingi? Því er auðsvarað: Engar. Ég hvet menn til að andmæla mér hér í pontu og benda á lausnir og leiðir sem þessir flokkar hafa komið með á þessu þingi.

Hvar eru þingmenn ríkisstjórnarinnar sem er annt um menntakerfið? Hvar eru þeir? Ég auglýsi eftir þeim hér með í pontu. Hvenær ætla þeir að ræða leiðir og lausnir? Skipta grunnskólanemendur þessa þingmenn engu máli? Vakna engar spurningar hjá stjórnarliðum í kjölfar stöðunnar í menntamálum? Fólk er kosið hér á þing til að sinna þessum málum og ég hvet þingmenn þessara flokka, sérstaklega Viðreisnar og Samfylkingar, að gera það.