158. löggjafarþing — 7. fundur,  16. sept. 2026.

störf þingsins.

[13:36]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Nú berast fregnir af áformum hæstv. atvinnuvegaráðherra um að banna hvalveiðar með lagasetningu á yfirstandandi þingvetri. Mér finnst slík áform ráðherrans grafalvarleg og raunar óásættanleg, að ætla að banna heila atvinnugrein sem skapað hefur bæði störf og útflutningstekjur. Ég minni á að á annað hundrað manns eru með atvinnu í tengslum við hvalavertíðina, skila umtalsverðum gjaldeyristekjum, skapa vel launuð störf sem hafa veruleg áhrif á atvinnulíf og skatttekjur í nærumhverfi hvalstöðvarinnar í Hvalfirði. Þetta snýst ekki síst um atvinnufrelsi, atvinnuöryggi, verðmætasköpun og lífsafkomu fólks og fjölskyldna, ekki síst á Vesturlandi.

Sem kunnugt er eru hvalveiðar og viðskipti með hvalaafurðir bannaðar innan Evrópusambandsins og ætlaði atvinnuvegaráðherra Viðreisnar líklega að láta hvalveiðar við Íslandsstrendur hverfa með aðildarsamningi við ESB en sem betur fer var henni ekki kápan úr því klæðinu því Íslendingar höfnuðu áframhaldandi aðildarviðræðum við sambandið. Rök ráðherra fyrir banni á hvalveiðum eru gamalkunn; þrýstingur að utan, viðskiptahagsmunir og dýravelferð. Svo er það eitt: Ráðherra talar einnig um að ekki sé hægt að selja afurðirnar. Bíðið við, það er bara alls ekkert hennar mál. Það er atvinnufrelsi á Íslandi og Hvalur hf. hefur hingað til getað selt sínar afurðir og hefur m.a. síðustu ár verið að þróa vinnslu járnbætiefnis úr hvalkjöti. Þetta er algerlega frábær og mikilvæg þróunarvinna sem getur bætt líf margra vitandi það að mjög margir glíma við járnskort. Til fróðleiks vil ég benda á að t.d. naut er með járn sem nemur um 40 milligrömmum per kíló en langreyður hefur 300 milligrömm per kíló; það er gígantískur munur á þessum tveimur tegundum.

Ég vil einnig geta þess að ég heimsótti hvalstöðina í sumar og fylgdist með móttöku tveggja langreyða og verkun þeirra. (Forseti hringir.) Það voru algjörlega frábærar móttökur og lærdómsríkt. Ég hvet þingheim til að sækja hvalstöðina heim og kynnast þessari atvinnugrein með því að sjá hvernig hlutirnir fara þar fram.