störf þingsins.
Frú forseti. Hæstv. dómsmálaráðherra sagði í viðtali í vor að stóra verkefni stjórnvalda í útlendingamálum væri að almenningur upplifði að stjórnvöld hefðu stjórn á aðstæðum í málaflokknum. Dæmi sem tekið hefði verið um árangur stjórnvalda væri sú staðreynd að fjöldi útlendinga væri nú að hverfa af landi brott þessa dagana.
Frú forseti. Við þetta vil ég gera athugasemdir. Það er ekki nóg að fólk upplifi að hlutirnir séu að skána. Hlutirnir þurfa raunverulega að skána. Ástæður þess að einhverjir hópar útlendinga eru að fara af landi brott er einfaldlega atvinnuástandið hér á landi, minna er nú um atvinnu en áður. Og er hælisleitendum raunverulega að fækka? Bæði Merz Þýskalandskanslari og forsætisráðherra Danmerkur, Mette Frederiksen, hafa sagt að hugmyndin að baki alþjóðlegri vernd hafi alltaf verið sú að veita fólki tímabundið skjól og síðan eigi fólkið að fara aftur til síns heima þegar ástandið hefur lagast.
Hér á landi eru skráðir tæplega 1.000 Sýrlendingar, margir með stöðu flóttamanna með alþjóðlega vernd. Bráðum eru tvö ár, frú forseti, síðan borgarastyrjöldinni í Sýrlandi lauk. Á meðan á stríðinu stóð streymdu allt að 12 milljónir flóttamanna frá átakasvæðum til Evrópu og einhverjir hingað til lands. Einræðisherrann og illvirkinn Assad, sem fólk er að flýja, hefur nú einhvers konar stöðu hælisleitanda í Moskvu og engin ógn stendur lengur af þessum manni. Lönd Evrópu eru að vinna hörðum höndum að því að senda Sýrlendinga aftur til síns heima og herma fréttir að í Austurríki sé í gangi herferð í þeim efnum. Hollendingar, Norðmenn og Þjóðverjar eru þegar byrjaðir að senda Sýrlendinga heim til sín. Hvað hafa íslensk stjórnvöld aðhafst til að senda Sýrlendinga sem hér hafa haft skjól í alþjóðlegri vernd eða hafa óskað eftir slíkri vernd úr landi og til síns heima þar sem þau eiga möguleika á að sameinast fjölskyldum sínum að nýju og geta lagt hönd á plóg við uppbyggingu síns heimalands eftir langvarandi átök?