störf þingsins.
Virðulegur forseti. Mig langar enn og aftur að ræða fjölmiðlanefnd sem er sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem heyrir undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og kostar skattgreiðendur rúmlega 100 millj. kr. á ári. Nú er svo komið að stjórnendur hlaðvarpsins Komið gott hafa fengið lokatækifæri til að skrá hlaðvarp sitt sem fjölmiðil ellegar eigi þær yfir höfði sér stjórnvaldssekt sem geti numið allt að 10 millj. kr. Ég hef tekið sambærilegt mál hér upp í þingsal áður og velt upp þeirri spurningu: Af hverju er ríkisvaldið að skipta sér af hlaðvörpum sem einstaklingar halda úti? Og ég er þeirrar skoðunar að þessi nefnd eigi að leggja niður og færa einhver verkefni annað. Hver er nauðsyn þess að reka slíka ríkisnefnd eða ríkisstofnun sem eltir uppi einstaklinga sem halda úti hlaðvörpum þar sem þeir eru að koma skoðunum sínum á framfæri og, eins og í þessu tilviki, að spjalla á léttu nótunum um hin ýmsu hugðarefni? Þarna hafa tveir einstaklingar búið til skemmtiþátt úr engu en ríkið mætir á svæðið og finnst tilefni til að skipta sér af og beita þá íþyngjandi skilyrðum. Fjölmiðlanefnd vill flokka spjall vinkvennanna sem fjölmiðil því í hlaðvarpinu væri vali á umfjöllunarefni stjórnað og fjárhagslegur ávinningur virtist vera af miðlum hljóðvarpsins. Hæstv. menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra Logi Einarsson lýsti því yfir í sumar að vinna væri hafin við að breyta lögum þarna um, þannig að hlaðvörp verði ekki lengur skráningarskyld sem fjölmiðlar. Vonandi hefur hann meint það en engu að síður heldur fjölmiðlanefnd áfram að hamast í stjórnendum hlaðvarpa og finnst viðeigandi að gefa í þessu tilviki hljóðvarpinu Komið gott lokafrest til næstu mánaðamóta til skráningar. Ríkið er áfram upptekið af því að kveða niður sköpunarkraft einstaklinga og drepa einkaframtak. Er ekki, virðulegur forseti, komið gott af því?