störf þingsins.
Virðulegi forseti. Fátt hefur jafn mikil áhrif á kjör fólks og afborganir húsnæðislána. Núna loksins virðast allir vera orðnir sammála um slæm áhrif verðtryggingarinnar á hagkerfið og heimilin, nokkuð sem Hagsmunasamtök heimilanna hafa bent á allt frá bankahruninu við lítinn hljómgrunn. Þáverandi ríkisstjórn missti því miður af einstöku tækifæri til að afnema hana því að auðvitað átti að gera það þegar vextir voru í 0,75% og fjölmargir höfðu skipt yfir í óverðtryggð lán. Enginn sem hefur áhyggjur af henni í dag hvatti til þess þá, ekki heldur Seðlabankinn. Ef það hefði verið gert hefðu vextir aldrei orðið jafn háir og þeir hafa orðið því að það er staðreynd að stýritækið vaxtahækkanir, sem Seðlabankinn hefur óspart beitt á undanförnum árum, virkar lítið og illa í verðtryggðu hagkerfi.
Þegar vaxtahækkunartímabil Seðlabankans hófst var rétt um þriðjungur fasteignalána verðtryggð en núna er hlutfallið komið yfir tvo þriðju. Aukning verðtryggðra lána hefur því verið gríðarleg á undanförnum árum enda eina úrræði fólks í nauðvörn til að flýja óviðráðanlega vaxtabyrði. Í viðtali á Sprengisandi síðastliðinn laugardag lýsti seðlabankastjóri yfir áhyggjum af aukningu verðtryggðra lána, m.a. vegna þess að verðtryggingin dragi úr tilætluðum áhrifum vaxtahækkana Seðlabankans. Það hefur lengi vafist fyrir mér hvernig það fari saman að hækka vexti svo mikið að fólk flýi unnvörpum í verðtryggð lán og meintur vilji til að halda hérna uppi nafnvaxtakerfi. Það blasir við að vaxtahækkanir eru ekki líklegar til árangurs í baráttu við verðbólgu þegar þær bíta aðeins á um þriðjung heimila landsins. Samt hefur seðlabankastjóri ítrekað hvatt fólk til að leita ráðgjafar bankanna þegar vextir fara að bíta, vitandi að eina lausn þeirra væri að vísa fólki í verðtryggð lán sem svo aftur drægi úr virkni þess tækis sem hann hefur beitt af mikilli hörku.
Flótti fólks yfir í verðtryggð lán er sennilega eina ástæða þess að vanskil heimilanna hafa ekki aukist en því miður fara afleiðingar þeirra að bíta að nokkrum tíma liðnum og reyni fólk að skuldbreyta aftur þegar um hægist verður höfuðstóll skuldarinnar mun hærri en hann var áður. (Forseti hringir.) „Actions speak louder than words“, svo ég sletti, með leyfi forseta, eða gjörðir segja meira en orð. Hér fara orð og gjörðir engan veginn saman.
(Forseti (ÞSv): Þetta slapp til fyrst hv. þingmaður þýddi orðin.)