158. löggjafarþing — 7. fundur,  16. sept. 2026.

störf þingsins.

[13:50]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Dómsmálaráðherra segir að fækkun erlendra ríkisborgara um 500 frá desember sýni fram á að stjórnvöld séu að ná tökum á útlendingamálum. Mikið vildi ég að þetta væri rétt en Einar Geir Þorsteinsson, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Hafnarfirði, bendir réttilega á að mögulega sé verið að slá ryki í augu almennings. Pólverjum og Litáum hefur fækkað um tæplega 1.200 frá því í desember, meira en tvöföld sú fækkun sem ráðherra státar sig af. Það skýrist að mestu leyti af frosti á byggingarmarkaði og versnandi efnahagshorfum. Á sama tíma hefur ríkisborgurum fjölgað frá svokölluðum MENAP-löndum; Mið-Austurlönd, Norður-Afríka, Pakistan, Afganistan og Tyrkland, lönd sem eru oftast ekki talin líkt þenkjandi Íslandi. Í mörgum þessara ríkja eru réttindi kvenna og barna algerlega óásættanleg. Í Danmörku sýna tölur að karlar frá þessum sömu ríkjum eru allt að fjórum sinnum líklegri til að fremja ofbeldisbrot en Danir. Nýjar tölur frá Íslandi sýna að fólk frá MENAP-löndunum er allt að rúmlega fjórum sinnum líklegra til að þiggja hér bætur. Það vantar líka að segja hversu stór hluti fjölgunar íslenskra ríkisborgara skýrist af því að erlendir íbúar hafa fengið íslenskt ríkisfang. Í fyrra fengu 1.057 manns íslenskt ríkisfang, 68% fleiri en árið áður. Það er meira en tvöföld sú tala sem ráðherra kallar fækkun. Samkvæmt tölum Útlendingastofnunar voru gefin út 13.639 dvalarleyfi í fyrra. Þar er stærsti flokkurinn vegna fjölskyldusameiningar eða 3.313 leyfi. Þannig að þeim sem fækkar er fólk sem kom til að vinna og er á förum vegna lélegs efnahagsástands í boði ríkisstjórnarinnar. Tölurnar styðja ekki að verið sé að ná stjórn á málaflokknum, fremur að vandamálið sé að færast til. Tökum af alvöru á málaflokknum og Miðflokkurinn er til í þá vinnu með ríkisstjórninni.