störf þingsins.
Virðulegi forseti. Það er lágmarkskrafa að gagnrýni byggi á staðreyndum. Undanfarna daga hafa margir í stjórnarandstöðu haldið því fram að ríkisstjórnin ætli að ná fram hallalausum fjárlögum á næsta ári með því að skera niður framlög til velferðarmála. Það stenst einfaldlega ekki. Þrátt fyrir mikið aðhald í fjárlagafrumvarpinu er fjármunum forgangsraðað í grunnþjónustu velferðarkerfisins. Þar eru áætlanir um að auka framlög til heilbrigðismála um 16,2 milljarða, framlög til málefna barna og fjölskyldna um 8,8 milljarða og framlög til menntamála og atvinnustefnu verða aukin um 4,5 milljarða kr. á næsta ári. Árangur af stefnu ríkisstjórnarinnar er nú þegar greinilegur þegar ríkisstjórnin er tæplega tveggja ára. Við höfum ítrekað minnst á fjölgun hjúkrunarrýma en á síðustu 12 mánuðum hafa 244 ný hjúkrunarrými verið tekin í notkun. Enn fleiri eru í undirbúningi. Nú bíður ekkert barn eða ungmenni eftir plássi á meðferðarheimili á vegum ríkisins. Stór skref hafa verið tekin til að bæta kjör öryrkja og tekjulægri eldri borgara. Frá og með næstu áramótum taka greiðslur almannatrygginga mið af hækkun launavísitölu. Húsnæðisverð hefur lækkað að raunvirði og hlutfall fyrstu kaupenda á íbúðamarkaði er það hæsta frá því fyrir hrun. Greining þjóðhagsráðs sýnir jafnframt að kaupmáttur hefur aukist frá árinu 2024 hjá öllum tekjutíundum. Samhliða þessu hefur verið og verður áfram ráðist í mikla uppbyggingu innviða í samgöngum víða um land og framkvæmdir eru til að mynda hafnar við stækkun Sjúkrahússins á Akureyri. Þetta er gert á sama tíma og ríkisstjórnin leggur fram fyrsta hallalausa fjárlagafrumvarpið í tæpan áratug. Þetta þýðir auðvitað ekki að ríkisstjórnin hafi leyst úr öllum vandamálum samfélagsins. Verðbólgan, sem má að mestu leyti rekja til ytri áhrifa, er enn of mikil. Biðlistar eru enn til staðar á ýmsum stöðum. Verkefnin eru næg. Við tökumst eðlilega á um strauma og stefnur í stjórnmálum. Það er aftur á móti eðlileg krafa að pólitísk umræða byggi á staðreyndum. (Forseti hringir.) Hallalaus fjárlög og sterk velferðarþjónusta eru ekki andstæður. Markmið ríkisstjórnarinnar er að ná hvoru tveggja.