158. löggjafarþing — 7. fundur,  16. sept. 2026.

störf þingsins.

[13:55]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Í dag er dagur íslenskrar náttúru og náttúran grætur. Hún grætur stórum þykkum regndropum sem berja á rúðum landsmanna. Hún grætur yfir því að ríkisstjórnarflokkarnir sem lofuðu skýrara og sterkara regluverki um sjókvíaeldi hafi ekki enn tekist að ljúka því mikilvæga verkefni. Hún grætur yfir því að fólk sem hefur áhyggjur af vindorkuverum í náttúru Íslands sé líkt við Trump í orðræðu hæstv. umhverfismálaráðherra. Hún grætur fyrst og fremst yfir því að rödd hennar hafi nánast þagnað hér á Alþingi Íslendinga; að náttúruvernd sé farin úr tísku, líkt og flík sem maður eigi helst að skammast sín fyrir að klæðast. En þó að stjórnmálin bregðist þá veit fólkið í landinu að náttúran er eitt það dýrmætasta sem við eigum. Hún er grunnur að heilsu okkar, bæði á sál og líkama. Hún er líka stoð menningar okkar og lista, eins og sjá má í verkum Kjarvals, Rúríar og RAX, heyra í tónlist Bjarkar og finna í verkum skálda á borð við Steinunni Sigurðardóttur og Jónas Hallgrímsson. Síðast en ekki síst er náttúran undirstaða efnahagslegrar velferðar Íslands; sjávarútvegur, landbúnaður, ferðaþjónusta og orkumál, allt eru þetta greinar sem treysta á nyt af einstakri náttúru Íslands.

Við vitum, virðulegi forseti, að það má ekki blóðmjólka náttúruna. Ef gengið er of nærri henni tapa allir til lengri tíma. Þess vegna er mikilvægt að nýting hennar sé sjálfbær, varfærin og byggð á langtímahugsun. Þess vegna verðum við að þora að ræða þessa langtímahagsmuni, líka þegar það er óþægilegt. Við þurfum að muna að náttúruvernd er ekki hindrun fyrir velferð heldur ein af forsendum hennar, og þá kannski styttir upp og birtir til.(Forseti hringir.)

Munum, kæru þingmenn og kæru landsmenn, í dag og alla aðra daga að þakka fyrir þau fjölbreyttu auðæfi sem náttúra Íslands færir okkur. Þau eru ekki sjálfsögð. Gleðilegan dag íslenskrar náttúru.