158. löggjafarþing — 7. fundur,  16. sept. 2026.

störf þingsins.

[13:57]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Frú forseti. Burt séð frá kjördæmum gleðjast vonandi þingmenn og landsmenn allir með mér yfir fréttum sem bárust frá Bakka við Húsavík þar sem upp eru komin áform um eitt stærsta gagnaver landsins, 100 MW verkefni og fjárfestingu upp á 120 milljarða kr. Á framkvæmdatíma gæti þetta skapað 400–500 störf og svo varanleg störf sem nema fleiri tugum eða um 50 ef rétt er áætlað. Þá eigum við eftir að taka inn alla afleidda atvinnu sem gæti skapast. Þetta skiptir auðvitað gríðarlega miklu máli fyrir samfélag sem varð fyrir ótrúlega miklu höggi. Þetta gerist ekki af sjálfu sér. Ríkisstjórnin byggir þarna ofan á margra ára heimavinnu Eims, Norðurþings, Landsvirkjunar og Orkuveitu Húsavíkur. Hæstv. forsætisráðherra hefur skipað starfshóp um atvinnumál svæðisins og stutt hefur verið við styrkingu raforkuinnviða og sérstakur verkefnastjóri stórfjárfestinga í forsætisráðuneytinu starfar nú og samræmir aðkomu stjórnvalda. Þetta leiðir af atvinnustefnu, heildstæðri stefnu um hvernig við búum til raunverulega verðmætasköpun sem skilar eiginlegum ávinningi fyrir landsmenn alla en ekki skammtímaávinningi. Þetta skapar grundvöll fyrir alvöruháframleiðnigreinar hérna á Íslandi, fjölbreyttari útflutning og kjölfestuverkefni á landsbyggðinni.

Forseti. Það verður að vera ábyrgð á bak við hvert megavatt í gagnaveri. Þessi iðnaður er ekki óumdeildur á heimsvísu. Þetta getur verið þjóðaröryggismál, ég leyfi mér að fullyrða það. Ávinningurinn verður að sjást í störfum, skatttekjum og þekkingu sem verður til á Íslandi, og aftur segi ég, raunverulegri verðmætasköpun sem ógnar ekki stafrænu fullveldi landsins eða gerir okkur háð tengingum við aðra sem sinna ekki gagnaflutningi með ábyrgum hætti. Ég kalla því eftir að við setjum okkur skýra stefnu um að tryggja gagnsæi um raunverulega eigendur, endanotendur og eðli þeirrar starfsemi sem reikniaflið á að þjóna því stafrænt fullveldi er ekki sjálfgefið og það er sérstakt fjöregg sem við þurfum að passa upp á.

Forseti. (Forseti hringir.) Endurnýjanleg orka, kalt loftslag og öruggt samfélag skapa Íslandi mjög góð skilyrði til að stunda þennan iðnað. (Forseti hringir.) Ég hlakka til að sjá hvernig við sköpum þessum iðnaði norður á Bakka farsæla framtíð.