158. löggjafarþing — 7. fundur,  16. sept. 2026.

störf þingsins.

[14:00]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf):

Virðulegi forseti. Mig langar að tala um mikilvægi þess að afla tekna til að eiga fyrir útgjöldum, þar á meðal lögboðnum útgjöldum, viðhaldi og nýframkvæmdum. Hver og ein einasta þjóð þarf að afla tekna til að vera sjálfbær í sínum rekstri. Það er pólitík. Það er líka pólitík að gefa afslætti af sköttum og gjöldum. Það er líka pólitík. Við höfum verið að gefa afslætti af veiðigjöldum. Núverandi ríkisstjórn hefur tekið á því. Við höfum verið að gefa afslætti af tekjuskatti í hæstu tekjutíundinni. Það er pólitík. Og við höfum líka verið að gefa afslátt af virðisaukaskatti hjá baðlónum. Getur einhver útskýrt þá pólitík fyrir mér? Baðlón? Jú, ferðaþjónusta. Geta Samtök atvinnulífsins og Samtök ferðaþjónustunnar útskýrt fyrir mér af hverju fullur virðisauki er af bílaleigum en miklu lægri á baðlónum? Er hvort tveggja ekki ferðaþjónusta? Og af hverju er yfirleitt verið að gefa afslátt af gjöldum hjá þeim fyrirtækjum sem best standa í samfélaginu og eru aflögufær? Ég nefni bankana sem eru aflögufærir um 100 milljarða á ári og eru að kvarta núna undan 6 milljarða auknum skatti. Kvarta. Almenningur kvartar ekki yfir því að þurfa að borga sín gjöld. Hann veit að það er samhengi á milli hlutanna. Ef við öflum tekna þá eigum við fyrir þeim útgjöldum sem eru lögboðin í þessu landi til heilbrigðismála, menntamála, vegagerðar og ég gæti haldið áfram hér í allan dag. Við eigum að afla tekna til að búa til gott samfélag. Norræna módelið er fyrirmynd í heimi hér. Af hverju er norræna módelið fyrirmynd í heimi hér? Það er vegna þess að það er byggt upp á sósíaldemókratískri pólitík sem gerir ráð fyrir samfélögum. Það gerir ráð fyrir samfélögum fólks en ekki sundrungu. (Forseti hringir.)

Frú forseti. Í þessum löndum hefur félagshyggjan alltaf virkað betur en frjáls pólitík sem fjallar um frjálshyggju sem er fyrir fáa.(Gripið fram í: Heyr, heyr.)