158. löggjafarþing — 7. fundur,  16. sept. 2026.

störf þingsins.

[14:05]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegur forseti. Hér fyrr í störfum þingsins kom hv. þm. Jón Pétur Zimsen og óskaði eftir fulltrúum stjórnarflokkanna í umræðu um menntamál. Það er mér ljúft og skylt að mæta hér og upplýsa þingmanninn um stöðu menntamála í landinu og hvaða aðgerðir eru í gangi, þótt ég viðurkenni að það komi mér á óvart að hann hafi ekki orðið var við aðgerðir og skref ríkisstjórnarinnar í menntamálum á síðastliðnum árum.

Hv. þingmaður er vel að sér í menntakerfinu, starfaði áður við stefnumótun menntamála í menntamálaráðuneytinu undir forystu Lilju Alfreðsdóttur og í tíð síðustu ríkisstjórnar sáum við því miður sögulegt fall í námsárangri íslenskra nemenda í PISA-könnuninni. Blessunarlega hefur hægt á þeirri þróun og byrjað að snúa henni við með nýrri sókn í menntamálum. Í tíð síðustu ríkisstjórnar voru samræmd próf lögð af þannig að yfirvöld og sveitarfélög höfðu enga yfirsýn yfir stöðu á námsmati nemenda sinna. Þessu hefur verið snúið við með innleiðingu matsferils. Áratugum saman, og sérstaklega undir forystu þessara flokka, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, í menntamálaráðuneytinu, hefur verið ákall vegna skorts á námsgögnum, árum saman, frá því að skólarnir fóru frá ríki til sveitarfélaga. Blessunarlega er að koma innspýting í gerð námsgagna á Íslandi núna strax á næsta ári, 500 milljóna innspýting. Við höfum einnig innleitt símafrí til að veita nemendunum okkar aukið svigrúm til að einbeita sér að náminu. Næst á að skoða samfélagsmiðlana því að við sjáum einfaldlega í tölunum hvernig samfélagsmiðlar hafa neikvæð áhrif á námsárangur barnanna okkar. Við erum einnig búin að setja verkmenntaskólana í algeran forgang með sögulegri uppbyggingu verkmenntaskóla úti um allt land. Það skiptir máli að við útskrifum iðnaðarmenn á Íslandi og þetta erum við að taka föstum tökum. Á þingmálaskránni núna í vetur er verið að leggja fram þriðju aðgerðaáætlunina í menntastefnu til 2030. Þar er sérstaklega verið að leggja áherslu á STEM-greinar, að við horfum í raunvísindin, horfum í kjarnagreinarnar og eflum þær grunngreinar sem eru undirstaða náms á Íslandi.

Allt eru þetta skref sem hafa verið stigin undir þessari ríkisstjórn og stjórnarflokkarnir í heild sinni hafa mælt fyrir. Ég hvet hv. þingmann til að halda áfram að taka virkan þátt í menntamálum og í þeim málum sem verið er að leggja fram hér í þinginu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)