158. löggjafarþing — 7. fundur,  16. sept. 2026.

staðfesting ríkisreiknings 2025.

74. mál
[14:08]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um staðfestingu ríkisreiknings árið 2025 í samræmi við ákvæði laga um opinber fjármál. Frumvarpið felur ekki í sér nýjar fjárheimildir heldur lögbundna staðfestingu ríkisreiknings.

Ríkisreikningur er gerður á grundvelli alþjóðlegra reikningsskilastaðla fyrir opinbera aðila, IPSAS. Ríkisendurskoðandi áritar bæði samstæðuársreikning ríkissjóðs og ársreikning A-hluta án fyrirvara. Það er álit ríkisendurskoðanda að reikningarnir gefi glögga mynd af fjárhagsstöðu ríkissjóðs, afkomu og breytingu á handbæru fé árið 2025.

Á árinu voru allir alþjóðlegir reikningsskilastaðlar fyrir opinbera aðila sem tekið höfðu gildi innleiddir og ekki reyndist þörf á frekari frestun. Áfram er þó unnið að því að ná að fullu utan um einstaka þætti sem staðlarnir taka til.

Afkoma samstæðu A-, B- og C-hluta samkvæmt IPSAS-reikningsskilum var neikvæð um 182 milljarða árið 2025, samanborið við neikvæða afkomu um 60 milljarða árið 2024. Aukin gjaldfærsla vegna lífeyrisskuldbindinga skýrir stóran hluta breytingar á afkomu milli ára, en hún nam 140 milljörðum árið 2025 samanborið við 47 milljarða árið áður.

Rekstrarafkoma ríkisreiknings er birt samkvæmt reikningsskilastöðlum fyrir opinbera aðila, IPSAS, eins og áður var nefnt, en heildarafkoma í fjármálaáætlun og fjárlögum er birt samkvæmt hagskýrslustaðli, svonefndum GFS-staðli. Báðum aðferðum er ætlað að tryggja samkvæmni og alþjóðlega samanburðarhæfni. Afkoma samstæðu A-, B- og C-hluta samkvæmt IPSAS er því ekki beinlínis samanburðarhæf við afkomu A1-hluta á GFS-grunni fjárlaga, enda er bæði umfang uppgjörsins og uppgjörsgrunnurinn ólíkur.

A1-hluti er sú starfsemi ríkisins sem er einkum fjármögnuð með skatttekjum, lögbundnum þjónustutekjum og framlögum. Afkoma A1-hluta samkvæmt alþjóðlegum hagskýrslustaðli um opinber fjármál, GFS, sem fjárlög byggjast á, var neikvæð um 66 milljarða. Í fjárlögum var gert ráð fyrir 62,6 milljarða halla og var niðurstaðan því 3,4 milljörðum lakari en fjárlög gerðu ráð fyrir. Hún var jafnframt 31 milljarði lakari en síðasta áætlun ársins.

Heildartekjur A1-hluta á GFS-grunni námu 1.489 milljörðum. Þær voru rúmum 68 milljörðum umfram fjárlög en rúmum 4 milljörðum undir síðustu áætlun ársins. Frumjöfnuður var jákvæður um 50,5 milljarða en vaxtajöfnuður neikvæður um 116,5 milljarða.

Samkvæmt efnahagsreikningi A1-hluta námu eignir rúmum 3.389 milljörðum í árslok og jukust um 144 milljarða milli ára. Skuldir námu rúmum 3.584 milljörðum í árslok og hækkuðu um rúma 450 milljarða milli ára. Lántökur hækkuðu um rétt rúmlega 280 milljarða og lífeyrisskuldbindingar um tæplega 165 milljarða. Þar af má rekja tæpa 147 milljarða til leiðréttingar á upphafsstöðu 1. janúar 2025.

Eigið fé A1-hluta var neikvætt um 195 milljarða í árslok, samanborið við jákvætt eigið fé um 111 milljarða árið áður. Breytingin milli ára skýrist, auk afkomu ársins, að verulegu leyti af leiðréttingum á upphafsstöðu vegna lífeyrisskuldbindinga og eignfærðs virðisaukaskatts í fjárfestingum. Endurmat samgöngumannvirkja hafði hins vegar jákvæð áhrif á eigið fé. Neikvætt eigið fé endurspeglar því ekki afkomu ársins 2025 eina og sér.

Handbært fé A1-hluta nam 419 milljörðum í árslok, samanborið við 360 milljarða í ársbyrjun.

Forseti. Að svo mæltu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til fjárlaganefndar að lokinni þessari umræðu.