staðfesting ríkisreiknings 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferðina á þessum ríkisreikningi. Það er ekki mjög upplífgandi að eigið fé er að snúast úr jákvæðu í neikvætt í þessum reikningi og hallinn er hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Það er nú þannig þegar við erum að gera áætlanir, bæði varðandi gjaldahliðina og tekjuhliðina, að stundum er viss óvissa í kringum það. En óvissan má samt sem áður ekki vera of mikil. Þegar hún er orðin of mikil og við sjáum tölur í áætlunum og síðan hvernig niðurstaðan verður — þegar veruleg skekkja er þarna á milli vekur það athygli. Það sem vakti athygli mína í þessum ríkisreikningi er hversu stór hluti fjárfestingarheimilda ríkisins virðist ekki hafa nýst á árinu 2025. Við erum ekki að tala um einhver hundruð milljóna, við erum að tala um tugi milljarða sem ekki voru nýttir. Þetta á m.a. við um mikilvæg svið eins og á sviði heilbrigðismála og samgangna og nú veit ég að nýi Landspítalinn gæti verið stór hluti af þessu. (Forseti hringir.) Samt sem áður, ef við horfum á samgöngur og annað, þá virðist skorta þar vel á. (Forseti hringir.) Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann hafi einhver svör við þessu.