158. löggjafarþing — 7. fundur,  16. sept. 2026.

staðfesting ríkisreiknings 2025.

74. mál
[14:18]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég og hæstv. fjármálaráðherra vorum um margt sammála í byrjun þessa kjörtímabils en eftir því sem hefur liðið á tímabilið virðumst við minna og minna sammála. Við erum þó sammála um að það má gagnrýna fyrri ríkisstjórn fyrir margt og ekki var ég ánægð með útgjaldagleði hennar þrátt fyrir að hluti af því eigi eðlilegar skýringar. Mig langar þess vegna að spyrja, af því að í þessu hér fyrir árið 2025 fór þessi ríkisstjórn langt fram úr því sem áætlað var þrátt fyrir auknar tekjur og hún fór líka fram úr 2026: Hvað skýrir þessa útgjaldagleði og er einhver von til þess að það verði ekki sama núna á næsta ári miðað við þennan reikning?