staðfesting ríkisreiknings 2025.
Frú forseti. Hæstv. fjármálaráðherra nefnir að það þurfi að gera bragarbót á liðum sem ríkið ræður ekki við. Í því samhengi verður maður náttúrlega að spyrja: Af hverju var hæstv. fjármálaráðherra þá að tengja bætur við vísitöluna? Það er mjög undarlegt og mér finnst hljóð og mynd ekki fara saman. Það er kannski fyrri spurningin og seinni spurningin er varðandi gagnsæi. Viðreisn er tíðrætt um að þau vilji gagnsæi og þess vegna spyr ég: Af hverju megum við ekki vita hvort tekjur vegna Kerecis séu inni í áætlunum núna eða uppfærðum áætlunum vegna 2026? Og af hverju megum við ekki vita hvernig tekjur eru innheimtar, samanborið bara við spurninguna um hvernig vörugjöldin eru að innheimtast? Þetta eru spurningar sem mér finnst eiga við inn í framtíðina fyrst við erum að samþykkja fyrsta reikning þessarar ríkisstjórnar.