158. löggjafarþing — 7. fundur,  16. sept. 2026.

staðfesting ríkisreiknings 2025.

74. mál
[14:21]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir síðari spurninguna. Þessar breytingar sem samþykktar voru á síðasta þingi um að bætur fylgi vísitölu mynda ekki á sama hátt óútfylltan reikning eins og þann sem ég var að ræða um. Þar liggur þó einingaverðið alveg fyrir. Það er fyrst og fremst þegar magnið eða magntölurnar eru óljósar. Það er ljóst séu ríkisreikningar bornir saman við fjárlög aftur í tímann, síðastliðinn áratug a.m.k., að það er töluvert verk að vinna í að bæta eftirfylgni með fjárlögum. Ég tek undir það með hv. þingmanni og mun leggja mig fram um að vinna með þinginu í því sem og að afla þinginu þeirra upplýsinga sem þingið biður um.