staðfesting ríkisreiknings 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans framsögu og ég fagna sérstaklega hans orðum um að það muni ekki standa á ráðuneytinu að veita þinginu og hv. fjárlaganefnd upplýsingar. Það er gríðarlega mikilvægt en það hefur verið frekar snúið.
Kannski að ég spyrji þá fyrst varðandi það hvort það sé ekki alveg á hreinu að við fáum þessa sundurgreiningu á 43 milljörðum til varnarmála sem hefur verið mjög snúið að ná í. Þar bendir hver ráðherra á annan eða það er sem sagt verið að benda.
Sömuleiðis ætla ég að spyrja hæstv. ráðherra varðandi söluhagnað í Íslandsbankaútboðunum tveimur. Hann var fyrst 1,9 milljarðar kr. og svo 9,7 milljarðar kr. en núna var sölutapið 10,2 milljarðar. Ég spyr hæstv. ráðherra hvort hann hafi ekki áhyggjur af þessu, hvort það valdi honum vonbrigðum að þetta fari úr þessum mikla söluhagnaði í þetta mikla sölutap.