staðfesting ríkisreiknings 2025.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir spurninguna. Það er sem sagt rétt að benda á, eins og hv. þingmaður er að gefa í skyn, að lífeyrisskuldbindingarnar sem koma fram samkvæmt IPSAS eru gagnvart B-deild LSR og eru þá leifar af eldra fyrirkomulagi sem eru ekki fjármagnaðar. Það hefur legið fyrir að þessar kröfur muni á endanum falla á ríkið en IPSAS-staðallinn gerir ráð fyrir því að þær séu bókfærðar um leið og þær verða til fremur en þegar þær falla eins og GFS gerir. Það er samt þannig að fjármálaráðuneytið fylgist náið með stöðunni hjá LSR og hefur skuldbundið sig til þess að tryggja fjármögnun þegar á henni verður þörf. Og það þarf auðvitað ekki að taka það fram að að sjálfsögðu legg ég megináherslu á að fjáraukalög, eins og önnur þau lög sem ég mæli hér, fyrir fylgi reglum og lögum.
(Forseti (ÞSv): Það er mælt fyrir frumvörpum á hinu háa Alþingi og svo eru þau gerð að lögum.)