staðfesting ríkisreiknings 2025.
Frú forseti. Það er svo sem búið að koma nokkuð inn á það sem ég ætlaði að spyrja út í en uppgjörið á 2025 er svolítið mikilvægt og staðfesting ríkisreiknings felur fyrst og fremst í sér formlega staðfestingu. Ríkisreikningurinn á að vera mikilvægt eftirlitstæki Alþingis og við eigum að læra af honum, kalla eftir skýringum og tryggja að samþykktar fjárheimildir skili raunverulegri þjónustu og uppbyggingu um allt land. Það sem er kannski í þessu máli að fjárlögin sem voru samþykkt í nóvember 2024 fyrir árið 2025, ef við myndum hreinsa út varðandi lífeyrisskuldbindingarnar, útreikningana þar, fjáraukana sem komu, fjórir, fimm yfir árið, hefðu þessi fjárlög ekki bara farið langt með að vera í kringum núllið ef allt væri tekið með? Við sjáum að lífeyrisskuldbindingarnar eru um 90 milljarðar og heildartalan hækkar mjög mikið við það og svo eru fleiri þættir þarna á bak við. En ef við tökum allt saman — það er kannski það sem maður hefði haft áhuga á að sjá miðað við framlögð fjárlög og síðan ríkisreikninginn og það er að einhverju leyti reynt að taka það saman. (Forseti hringir.) En er það ekki þannig að ef við hefðum tekið út lífeyrisskuldbindingarnar og fjáraukana fimm hefði þetta verið nálægt núllinu?