staðfesting ríkisreiknings 2025.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir spurninguna og ég tek undir mikilvægi ríkisreiknings og skilnings almennt á ríkisreikningi. Nú eru auðvitað tölurnar sem þarna koma fram, eins og kemur óbeint fram í máli hv. þingmanns, ekki að fullu sambærilegar við fjárlög og fjármálaáætlun vegna þess að fjárlög og fjármálaáætlun eru unnin samkvæmt GFS-staðli en ríkisreikningur samkvæmt IPSAS. Hv. þingmaður nefndi 90 milljarða en ég hygg að hið rétta sé 140 milljarðar, 90 milljarðar eru mismunurinn. En það er alveg ljóst að á árinu 2025 var stigið mjög mikilvægt skref í áttina að því að ná jafnvægi í rekstri ríkisins. Ég held að það sé hins vegar óvarlegt að gera ráð fyrir því að það megi horfa fram hjá fjárauka vegna þess að í flestum tilfellum er í fjárauka kveðið á um útgjöld sem voru ófyrirséð og eru óumflýjanleg. En niðurstaðan er tvímælalaust í rétta átt.