158. löggjafarþing — 7. fundur,  16. sept. 2026.

staðfesting ríkisreiknings 2025.

74. mál
[14:31]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Forseti. Það kemur einmitt fram í þessu máli að gengið var á varasjóðinn vegna B-deildar LSR lífeyrissjóðsins til að mæta slæmri tryggingafræðilegri stöðu, en það hefur ekki komið fram opinberlega hvort skilyrði til þess hafi verið uppfyllt. Ég man ekki eftir að þetta hafi verið tekið sérstaklega fyrir í fjárlaganefnd. Væri ekki eðlilegt út frá eftirlitshlutverki þingsins og fjárlaganefndar að þetta væri tekið fyrir þar?

Síðan vildi ég taka sérstaklega undir það sem kemur fram hjá hæstv. ráðherra, hann tekur undir að aðstoða þingið við eftirlitshlutverk sitt. Á fjárlaganefndarfundi í morgun þá tók ég þetta svolítið upp og maður hefur miklar áhyggjur af fjárfestingarheimildunum sem eru ónýttar. Þetta virðist vera lenska yfir mjög langt tímabil og ég óskaði eftir minnisblaði frá ráðuneytinu til 10 ára um hvernig þessum málum hefur verið háttað. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt til að auka gegnsæi í tengslum við fjárlagavinnuna hvernig farið er með þessar heimildir. Það virðist vera að þetta sé ekki alveg í nægilega góðum farvegi hjá okkur. Tekur hæstv. ráðherra undir það?