staðfesting ríkisreiknings 2025.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir spurninguna. Hún heggur raunar í svipaðan knérunn og fyrirspurn hv. þm. Ingibjargar Isaksen og ég vil nota tækifærið og endurtaka mitt svar. Ég deili 100% áhyggjum hv. þingmanns af því að fjárfestingarheimildir gangi ekki út. Það er eitthvað að áætlanagerð ef svona mikil frávik, sem hlaupa á tugum milljarða, verða til og þetta skapar auðvitað ákveðna opna stöðu sem gerir t.d. fjármögnun ríkissjóðs miklu erfiðari af því að það verður þarna ákveðinn ófyrirsjáanleiki í fjármögnunarþörf sem er mjög erfitt að eiga við. Einmitt þess vegna hefur það verið eitt af áherslumálum mínum sem fjármálaráðherra að leggja fram frumvarp til laga um fjárfestingar ríkisins, heildarendurskoðun á því, og, eins og ég vék að í máli mínu fyrr í þessari umræðu, á grundvelli fyrirkomulags sem Norðmenn hafa komið sér upp. Það hefur reynst vel núna til 20 ára hjá þeim, þeir hafa útvíkkað það aðeins. En við vitum líka þegar við horfum til ákveðinna ríkisaðila sem hafa staðið sig betur í sinni áætlanagerð, og ég vil í því samhengi nefna Landsvirkjun, að það er hægt að gera miklu betur en ríkið hefur gert hingað til og það er svo sannarlega minn metnaður að stuðla að því.