158. löggjafarþing — 7. fundur,  16. sept. 2026.

staðfesting ríkisreiknings 2025.

74. mál
[14:49]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans ræðu. Mig langar til þess að spyrja um lög um opinber fjármál sem hv. þingmaður gerir oft að umtalsefni og ég er hjartanlega sammála honum um að hafi verið mikið framfaraskref þegar það var stigið á sínum tíma. Við höfum hér ítrekað rætt um þær framúrkeyrslur á útgjöldum sem hafa einkennt rekstur íslenska ríkisins mjög lengi og mikilvægi þess að eftirfylgni í framkvæmd fjárlaga sé bætt.

Nú kveða lög um opinber fjármál á um að ríkið komi sér upp innri endurskoðun. Það hefur aldrei verið framkvæmt og ég myndi gjarnan vilja heyra álit hv. þingmanns á þeirri hugmynd vegna þess að það er nákvæmlega eitt af hlutverkum innri endurskoðenda að fara yfir brotalamir sem eru í framkvæmd. Það væri í fyrsta lagi áhugavert að heyra hvers vegna þetta var ekki framkvæmt og í öðru lagi hver viðhorf hv. þingmanns eru til þess að slíku embætti yrði komið upp.