staðfesting ríkisreiknings 2025.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir svarið. Nú er auðvitað hlutverk innri endurskoðunar og ytri endurskoðunar nokkuð ólíkt og ég held að það sé mikilvægt að tekin verði umræða á vettvangi fjárlaganefndar um innri endurskoðun. Innri endurskoðun held ég að myndi veita okkur tækifæri til ákveðinnar gagnrýnnar endurskoðunar á aðferðafræði sem beitt er hjá hinu opinbera.
En mig langaði í síðari spurningunni að spyrja aðeins um uppfærslu lífeyrisskuldbindinga. Það er rétt sem hv. þingmaður bendir á að þetta kemur í slumpum og ástæðan er sú að þetta er einungis uppfært einu sinni á ári. Raunar eru ekki forsendur til þess að uppfæra þetta oftar en það er þó einn af kostum IPSAS-staðalsins, sem nú er að fullu innleiddur í fyrsta skipti við framlagningu ríkisreiknings, að hann tekur einmitt tillit til þessara skuldbindinga, þ.e. skuldbindinga sem munu falla en verða ekki gjaldfærðar fyrr en einhvern tímann í framtíðinni. Ég velti aðeins fyrir mér á hvaða grunni hv. þingmaður byggir vangaveltur sínar um að lífeyrisskuldbindingarnar yrðu uppfærðar oftar.