158. löggjafarþing — 7. fundur,  16. sept. 2026.

staðfesting ríkisreiknings 2025.

74. mál
[14:54]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það sem ég er að sækjast eftir og mun spyrjast fyrir um í hv. fjárlaganefnd, þegar kemur að lífeyrissjóðsskuldbindingunum, er að mér finnst ekki alveg ljóst og það hafa ekki komið fram nákvæmari útfærslur á því þegar kemur að lífeyrissjóðsskuldbindingunum miðað við það samkomulag sem var gert milli fjármálaráðuneytisins og LSR. Og í stað þess að vera með stórar yfirlýsingar var ég að kalla eftir því og mun kalla eftir því að við fáum allar upplýsingar hvað það varðar vegna þess að miðað við þær upplýsingar sem ég hef bestar byggjast þessir hlutir á samkomulagi sem var gert á milli ráðuneytisins og LSR. Og ákveðnar forsendur þurfa að verða uppfylltar til þess að komi til uppgjörs og greiðslna. Ég spurði hæstv. ráðherra sérstaklega hvort það myndi nokkuð standa á að fá upplýsingarnar vegna þess að ég er ekki með þær allar. Þess vegna orðaði ég hlutina með þessum hætti.

Þegar kemur hins vegar að þessum málum er mjög mikið af athugasemdum sem koma frá Ríkisendurskoðun á hverju ári. Þá er ég ekki að tala um lífeyrisskuldbindingarnar heldur almennt um endurskoðunina. Við höfum nú svona rætt það í fjárlaganefnd að þetta sé svolítið endurtekið efni sem er auðvitað ekki gott þó að hlutirnir þróist í rétta átt og maður verður auðvitað að hafa skilning á því að það er ekki hægt að breyta öllu á einni nóttu. En ég bara segi að við erum miklu meira en tilbúin að ræða þessi mál, bæði í hv. fjárlaganefnd og í þinginu. Þó að við séum ósammála í stjórnmálum held ég að við ættum að geta náð sátt um (Forseti hringir.) að vera sammála um að umgjörðin eigi að vera eins góð og mögulegt er og ég lít svo á að þessi umræða okkar hér hafi gengið út á það.