158. löggjafarþing — 7. fundur,  16. sept. 2026.

staðfesting ríkisreiknings 2025.

74. mál
[14:57]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir ræðuna en árétta vegna þeirra spurninga og vangaveltna sem komu fram um varnartengd útgjöld að í aðdraganda Haag-fundarins fékk fjárlaganefnd minnisblað frá utanríkisráðuneytinu þar sem gerð var grein fyrir stóru línunum varðandi varnartengd útgjöld sem þá voru í vinnslu vegna Haag-fundarins. Það er dagsett 19. maí og liggur fyrir í gögnum nefndarinnar og á vef Alþingis. Jafnframt hefur komið fram að fjárlaganefnd stendur til boða að funda og fá frekari skýringar og gögn um þetta og það hefur verið rætt að þiggja það. Um þetta þarf því ekki að hafa stór orð eða lýsa mikilli furðu því að ég held að þetta sé í ágætisfarvegi þó að fundurinn hafi ekki verið tímasettur.