staðfesting ríkisreiknings 2025.
Virðulegur forseti. Við höfum beðið um sundurgreiningu á þessum 43 milljörðum og við höfum ekki fengið sundurgreiningu á þessum 43 milljörðum. Þetta er ekkert flókið. Ef þetta er ekkert vandamál þá hljóta þessar sundurgreiningar að liggja fyrir og það er útilokað að það sé einhver leynd yfir þessari sundurgreiningu. Það er ekki þannig, og ég fullyrði það án þess að vita það, að menn hafi fundið 43 milljarða og sett þá í eitthvert leynimál í tengslum við varnarmál, það er ekki þannig. Ég hvet bara hv. þingmann, sem er varaformaður fjárlaganefndar, til að hjálpa okkur í minni hlutanum við að fá þessar sjálfsögðu upplýsingar. Það eru alveg sjálfsagðar upplýsingar að fá sundurgreiningu á þessu. Við vitum öll að það eru komnar — eða ég vona það, ég geri ráð fyrir því og við vissum það fyrir löngu að það væri að koma eitthvert upplegg frá Atlantshafsbandalaginu um hvað gæti talist til varnartengdra verkefna og hvað ekki. Þetta er ekki lítil upphæð, 43 milljarðar, og tengist ýmsu öðru og það væri algjörlega fráleitt ef við værum ekki að ræða þessi mál í tengslum við fjárlög og ríkisreikning. Ég hvet hv. þingmann til að beina því áfram og sjá til þess að þingnefndin öll fái þessa sundurgreiningu.