158. löggjafarþing — 7. fundur, 16. sept. 2026.
staðfesting ríkisreiknings 2025.
74. mál
Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir andsvarið og ítreka að það er í raun búið og gert að fylgja því eftir að við fáum þennan fund þó að hann hafi ekki verið tímasettur. Yfirlitið náði bæði til þess sem heyrir undir A-hluta ríkissjóðs en líka til opinberra fyrirtækja og sveitarfélaga, þó að það séu lægri tölur. Það er sjálfsagt að fara yfir það á fundi með utanríkisráðuneytinu og eftir atvikum fjármálaráðuneytinu líka.