búvörulög og búnaðarlög.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir andsvarið og góðar hugleiðingar. Það er auðvitað alveg rétt, stóra málið í íslenskum landbúnaði, líkt og landbúnaði alls staðar í kringum okkur, er að kljást við áskoranir sem eru nýliðun, kynslóðaskipti og nátengt því auðvitað tækni og nýsköpun, af því að fólk sem starfar í landbúnaði er ekkert undanskilið fólki í öllum öðrum atvinnugreinum, það bæði vill og þarf að tileinka sér þær nýjungar sem eru í boði til að þróa sína atvinnugrein. Það er ástæðan fyrir því að við erum einmitt í þessari framlengingu að leggja áherslu á þessa nýliðun, nýsköpunarþáttinn, og ég hef hug á því að í þessu samtali sem við eigum í núna og tölum um framtíðarskipulag, að það sé aðeins liðkað til í frekar niðurnjörvuðum sílóum, ef svo má segja, þar sem við erum að bjóða upp á meiri sveigjanleika og meira frelsi fyrir einstaka bændur til að haga málum, eins og þeir kannski sjá, af því að við vitum það líka að bændur eru bara eins og aðrir; þeir hafa mismunandi áhuga og að einhverju leyti þekkingu á að nýta sér hina mismunandi þætti landbúnaðarins. Þetta er klárlega hlutur sem við erum að vinna með og erum með augun á þessum bolta. Þetta er ekki einfalt mál og hv. þingmaður, sem ég veit að er nú komin yfir í atvinnuveganefnd og mun sennilega láta meira til sín taka í þessum málum en hingað til á vettvangi þingsins — ég fagna því að geta átt í samtali og samvinnu við hana eins og aðra hv. þingmenn í hv. atvinnuveganefnd um þetta mál.
Varðandi aukningu á framlögum hvað varðar öryggis- og varnarmál þá er þetta bara alveg gríðarlega áhugaverð hugmynd. Við erum akkúrat nákvæmlega í þessu sama samtali þegar kemur að uppbyggingu alls konar innviða og auðvitað er þetta, atvinnugreinin landbúnaður, ekki undanskilið þar nema síður sé af því að byggðir um allt land skipta auðvitað miklu máli þegar kemur að þessu. Þannig að við höfum hingað til fyrst og fremst verið að horfa á akkúrat þennan þátt þegar kemur að fæðuöryggi og matvælaframleiðslu. En þetta er bara mjög áhugaverð nálgun í þessu tilliti, bara svo það sé sagt.