158. löggjafarþing — 7. fundur,  16. sept. 2026.

búvörulög og búnaðarlög.

76. mál
[15:24]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir góða yfirferð og ég hlakka til þessarar samvinnu. Ég veit að hæstv. ráðherra er með gott teymi í þessari vinnu sem ég hlakka til að vinna með sömuleiðis. Mig langar bara til að hnykkja á því í samhengi við nýliðunina sérstaklega, bara til að setja fram þær væntingar sem ég hef í þessum málum, að mér finnst mikilvægt þegar við erum að horfa á nýliðun, að við séum að horfa á erfðafjárskatt þegar einhver fellur frá og annar er að taka við. Mér finnst líka mikilvægt að við séum að hugsa um það að skattamál séu ekki að flækjast fyrir þegar það er verið að selja eignir á milli kynslóða, þegar nýir einstaklingar eru að taka við. Svo finnst mér líka að þeir hvatar sem þurfa að vera fyrir hendi, m.a. fyrir fólk sem vill koma inn í greinina, þurfi að vera skýrari og sterkari. Þannig að það er þessi heildarmynd sem þarf að vera þegar við erum að horfa á nýliðun: ef einhver fellur frá, kynslóðaskipti verða innan fjölskyldna, en líka að það séu möguleikar fyrir nýja aðila að koma inn í greinina. Kannski mætti hugsa sér, eins og Framsókn hefur sett fram, hugmyndir um að fólk geti tekið þátt í búskap á ríkisjörðum og svo sé einhvers konar fyrirkomulag um leigu eða kaup inn í framtíðina. Allt eru þetta hugmyndir sem væri áhugavert að vinna að og spegla þannig að, aftur, við séum að ná þessari viðspyrnu sem landbúnaður á Íslandi sannarlega þarf á að halda og á að fá, því að tækifærin eru alls staðar.