158. löggjafarþing — 7. fundur,  16. sept. 2026.

ársreikningar.

77. mál
[15:47]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er auðvitað ljóst að það þarf að gera frumvörp þannig úr garði að það sé ljóst hvað er hvað. Það er á sama tíma hægt að gera þá kröfu til þingmanna sem fjalla um málið að þau geri greinarmun á því hvenær verið er að fara út fyrir eðli tilskipana eða nýta sér þau mörk eða ramma sem alla jafna eru innan tilskipana. Hér er ekki verið að fara út fyrir þau mörk. Það er gefinn ákveðinn rammi, það er tekin ákveðin afstaða þar og færð rök fyrir því af hverju hún er tekin. Það er innan eðlis tilskipana. En það er alveg sjálfsagt og eðlilegt að vera skýrari með það ef þörf krefur. Ég taldi þessa greinargerð fara mjög vel yfir það hvernig stæði á því. En ég bara heyri hvað hv. þingmaður segir. Við gætum þess að vera skýrari með það. En eins og ég segi, það þarf auðvitað að gæta þess líka og stafa það ofan í fólk að þegar um það er að ræða að Evróputilskipanir gefa ákveðinn ramma, þannig að aðildarríki geti valið hvar innan þess ramma þau staðsetja sig, þá er það ekki gullhúðun.