158. löggjafarþing — 7. fundur,  16. sept. 2026.

varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl.

4. mál
[16:19]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið og hæstv. ráðherra fer alveg vel yfir forsögu málsins, þ.e. aftur. Ég skil mjög vel og ég held að við getum vel skilið, sérstaklega eftir þessi hræðilegu slys, að þá vorum við að fara í eitthvað sem hlutfallslega var miklu stærra á sínum tíma og það þurfti að forgangsraða. Ég hef alveg skilning á því. Hins vegar létum við taka þetta út og þetta eru ekki mörg svæði, sem atvinnusvæði. Þessi gögn eiga að vera til í ráðuneytinu. Við Sjálfstæðismenn munum leggja áherslu á að koma með breytingartillögu um að atvinnusvæðin séu þarna inni. Þetta er ekki, sem betur fer, fjárhagslega óyfirstíganlegt eða slíkt, það er alls ekki þannig. Hins vegar segir það sig sjálft að í samfélagi verður að hafa atvinnu og svo þarf fólk að geta búið þar. Þú stoppar það að fólk fjárfesti í atvinnusvæðum ef þau eru ekki varin. Það er ekkert flóknara en það, það er enginn sem tekur áhættu á slíku. Í ofanálag, af því að við viljum auðvitað að vernda mannslíf og sjá til þess að þetta geti verið blómleg samfélög, þá þekkir náttúran ekki lögin. Ég hvet alla til að skoða safnið á Seyðisfirði eða minnisvarðana sem eru þar um skriðuföllin, þeir segja í rauninni miklu meira heldur en mörg orð. Mér finnst það verða að vera útgangspunkturinn í þessari vinnu okkar í máli sem ég trúi ekki öðru en að það geti náðst breið samstaða um. Ég hvet hæstv. ráðherra og ríkisstjórnarflokkana til að endurskoða þessa afstöðu. Við getum ekki farið í breytingarnar núna og sleppt því að taka atvinnusvæðin með. Ég held að allir sem hugsi það átti sig á því að það gengur ekki. Að öðru leyti sýnist mér þetta vera bara mjög góðar breytingar en við megum ekki sleppa þessu.