158. löggjafarþing — 7. fundur,  16. sept. 2026.

varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl.

4. mál
[16:22]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hef svo sem ekki miklu við það að bæta sem ég sagði áðan. Ég kannski bendi á að það er ekkert í lögunum sem kemur í veg fyrir það í sjálfu sér að farið sé í að verja atvinnuhúsnæði. Ég held hins vegar að það sé heillavænlegt að við forgangsröðum áfram íbúðarhúsnæði eins og gert hefur verið en það er alveg svigrúm til að ganga lengra. En ég held að það væri óheppilegt ef áhersla á verndun atvinnusvæða yrði á kostnað hins. Ég held að það sé mikilvægt að hafa forgangsröðunina skýra samkvæmt lögunum en tek að öðru leyti undir með hv. þingmanni að til framtíðar er mikilvægt að horfa einnig til verndunar atvinnuhúsnæðis einmitt til að tryggja blómlega byggð og að það sé fjárfestingarvilji á svæðum þar sem ofanflóðahætta er fyrir hendi.