158. löggjafarþing — 7. fundur,  16. sept. 2026.

varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl.

4. mál
[16:28]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir sitt andsvar og tek undir með hæstv. ráðherra hvað það varðar að að sjálfsögðu er mannslífið alltaf í fyrsta sæti þegar kemur að því hvað við verjum. Við megum ekki gleyma því að við erum líka að verja mannslíf þegar við t.d. erum að loka vegum fyrir ofanflóðum. Ég held að allir geri sér grein fyrir því að það er, ég vil ekki segja að það sé ómögulegt en það er mjög há brekka að klífa að ætla að reyna að verja allar stofnæðar og vegi landsins. Þá er þetta sá kafli sem við getum nýtt okkur í þessu samhengi, þ.e. lokanir. Og af því að hér var verið að ræða um atvinnustarfsemi og sömuleiðis fáum við oft fréttir af því að það eru oft lokanir eða vakt á umferð í kringum hesthús á vissum stöðum, t.d. í Bolungarvík ef ég man rétt, þá þurfum við vissulega alltaf að forgangsraða. Ég held að það sé samt mjög mikilvægt í vinnu nefndarinnar og með hæstv. ráðherra að fara vel og gaumgæfilega yfir hvað mögulega er hægt að gera, en að sjálfsögðu verður það alltaf þannig að við setjum mannslífið í fyrsta sæti, hvernig við verjum það. Sums staðar verður það þannig að við getum ekki varið allar fasteignir, hvort sem það eru fasteignir sem eru notaðar í atvinnustarfsemi eða hús. Það er óhjákvæmilegt. Við vitum að náttúran er nær óútreiknanleg sömuleiðis en við þurfum að vinna með henni. Þá þurfum við líka alltaf að hafa þar einhverjar ákveðnar forsendur og fylgja því plani, ef ég má orða það svo, frú forseti, sem lagt er upp með af okkar færasta vísindafólki þegar kemur að rýmingu og öðru og sömuleiðis varðandi lokanir á vegum.