varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl.
Virðulegur forseti. Ég vil beina þessum orðum til hæstv. ráðherra sem fjallar um frumvarpið um breytingar á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum. Ég vil brýna ráðherra í því að ganga aðeins lengra, örlítið lengra. 12. gr. frumvarpsins snýr að óheimilli dvöl í húsum sem hafa verið keypt upp eða tekin eignarnámi. Leyfilegur dvalartími er yfirleitt skilgreindur með þinglýstum kvöðum eða annarri ákvörðun. Ég hef áhyggjur af því að það skuli ekki vera algerlega skýrt í lögum að hvers konar ólögleg dvöl — að það sé ekki hægt að nota það sem skálkaskjól að menn séu að fara í viðhald eða eftirlit með eignum. Að mínu viti, eftir ágætisreynslu af þessum málaflokki, þarf að setja þetta í þann farveg að þá þurfi að leita samþykkis fyrir fram, annaðhvort hjá lögreglu eða Veðurstofu eða þeim sem kemur til með að hafa þessar heimildir. Ég vildi bara benda á þetta atriði öðrum fremur.