158. löggjafarþing — 8. fundur,  17. sept. 2026.

bann við hvalveiðum.

[13:31]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Virðulegur forseti. Nú hefur hæstv. atvinnuvegaráðherra boðað enn eitt frumvarpið sem snýr að sjávarútvegi. Líkt og venjan er hjá hæstv. ríkisstjórn snúa nær allar aðgerðir hennar á sviði atvinnuveganna að því að hamla eða skattleggja atvinnulífið og reyndar helst hvort tveggja. Nú er hins vegar kveðið við annan og verri tón. Nú á að banna heila atvinnugrein eins og hún leggur sig; atvinnugrein sem hefur mikil áhrif á atvinnuöryggi og lífskjör fólks í Norðvesturkjördæmi. Þessi vegferð hæstv. atvinnuvegaráðherra vekur sérstaka furðu í ljósi þess að enginn einhugur er um málið. Þrír hv. þingmenn meiri hlutans, þar á meðal tveir úr flokki hæstv. mennta- og barnamálaráðherra, hafa lýst eindregnum stuðningi við hvalveiðar. Þá kom í ljós í pallborði Vísis fyrir skemmstu að enginn þingflokksformanna stjórnarflokkanna væri andvígur hvalveiðum. Það virðist því í raun allt benda til þess að ekki sé einu sinni þingmeirihluti fyrir málinu á Alþingi. Því vil ég spyrja hæstv. mennta- og barnamálaráðherra hvort hún telji í ljósi versnandi efnahagsástands og vaxandi atvinnuleysis sem íslenskur almenningur býr við að ráðlegt sé að banna heila atvinnugrein sem mun leggjast þungt á almenning á landsbyggðinni. Telur ráðherra það líklegt til að hjálpa til í baráttunni við vexti?