158. löggjafarþing — 8. fundur,  17. sept. 2026.

bann við hvalveiðum.

[13:33]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina, hvort það eigi að banna hvalveiðar. Það óneitanlega fær mig til að velta því upp hversu sjálfbærar hvalveiðarnar eru. Nýjasta útspil þess eina einstaklings sem hefur staðið að þessari atvinnugrein er að hann segir að í rauninni sé engin eftirspurn eftir kjötinu sjálfu en það megi þó alltaf þurrka það og setja það á belgi fulla af járni og bætiefnum til að gefa okkur hinum sem virðast vítt og breitt um heimsbyggðina þjást af járnskorti. Þetta þótti mér nú afskaplega einkennilegt útspil, ég verð að viðurkenna það. En, hv. þingmaður, sitt sýnist hverjum og ég hef ekki verið á móti því að nýta afurðir til manneldis þegar þær eru sjálfbærar og þegar við erum að nýta okkar eigin auðlindir. En ég er líka á hinni blaðsíðunni, ég er afskaplega mikið fyrir dýravelferð. Ég er t.d. mjög mikið á móti blóðmerahaldi, samanber nýjan dóm EFTA-dómstólsins, sem væntanlega verður tekinn fyrir í héraði í sambandi við blóðmerahald. Þegar við sjáum að það er verið að drepa hvali og það tekur upp í hálftíma iðulega að aflífa skepnuna þá flokka ég það undir dýraníð. Ég vildi gjarnan, ef við erum að drepa dýr til a.m.k. manneldis og nýta okkur þau, að það yrði gert á mannúðlegan hátt og ef við getum ekki gert það á mannúðlegan hátt þá hljóta líka að vakna upp þær siðferðilegu spurningar hvort það sé rétt að viðhalda slíkum veiðiskap.

En fyrst og síðast, hv. þingmaður, þá höfum við ekki verið að leggjast gegn því að nýta sjávarfang eða annað til manneldis og til að skapa okkur aukna atvinnu og aukna skatta. En hvalveiðar per se — þær eru hins vegar í mínum huga farnar að gera meira en að orka tvímælis.